
Eftirlit og umhirða fyrir bústaði
Við bjóðum reglubundið eftirlit og umhirðu fyrir sumarbústaði – svo þú getir verið andað léttar, jafnvel þegar þú ert ekki á staðnum.
Við fylgjumst með ástandi bústaðarins, tryggjum að allt sé í lagi og grípum strax inn ef eitthvað kemur upp.
Þjónustan hentar bæði sumar- og vetrarhúsum og er sérsniðin að þínum þörfum allt árið um kring.
Hver er þjónustan?
Sumarbústaðir standa oft auðir stóran hluta ársins, sérstaklega yfir vetrarmánuðina. Þá geta veður, frost og óvænt atvik haft áhrif án þess að eigendur taki strax eftir því.
Við bjóðum reglubundið eftirlit með bústöðum yfir veturinn þar sem fylgst er með ástandi eignarinnar og umhverfi hennar.
Við skoðum meðal annars hvort:
-
veður hafi valdið skemmdum
-
ummerki séu um leka, fok eða annað tjón
-
aðgengi, hurðir og gluggar séu í lagi
-
eitthvað kalli á tafarlaus viðbrögð
Ef eitthvað óeðlilegt kemur upp er haft samband strax og lausnir ræddar – áður en smávægilegt vandamál verður að stóru tjóni.
Þegar árstíðir skipta um ham er mikilvægt að huga að bæði umhirðu og undirbúningi sumarbústaðarins. Að vori býðst eigendum að fá bústaðinn tekinn í gegn eftir veturinn og almennri umhirðu sinnt í kringum hann. Þar fellur meðal annars undir pallaþrif, gangstéttaþrif og gluggaþrif ásamt almennum frágangi og snyrtingu lóðar, svo allt sé tilbúið fyrir sumarið.
Að hausti snýst þjónustan um að undirbúa bústaðinn fyrir komandi vetur. Þá er farið í þakrennuþrif, hreinsun í kringum húsið og almenna yfirferð á aðstæðum áður en veður versna. Markmiðið er að lágmarka líkur á vandamálum yfir vetrartímann og tryggja að bústaðurinn fari í veturinn í sem bestu ástandi.
Þessar þjónustur er hægt að nýta einar og sér eða sem hluta af heildarlausn í tengslum við eftirlit og aðra umhirðu á bústaðnum.
Markmiðið er einfalt:
Að þú getir notið bústaðarins þegar þú kemur – án óþarfa áhyggja þegar þú ert ekki á staðnum.
Hafðu samband og fáðu þjónustu sniðna að þínum bústað og þínum þörfum.


